← Öll efni
Deiling með fjölskyldunni
Deila vöru með hinu foreldrinu
Gefðu hinu foreldrinu eða öðrum fullorðnum aðgang sem meðforeldri svo þið fáið bæði skilaboð og símtöl þegar varan er skönnuð.
Búið þið ekki undir sama þaki, eða viljið þið bara vera tvö um ábyrgðina? Sem eigandi getur þú deilt vöru með öðrum fullorðnum sem fær þá skilaboð og símtöl eins og þú.
Svona gerir þú
- Opnaðu vöruna af forsíðunni og ýttu á tannhjólið efst til hægri (Stillingar).
- Finndu Fólk. Hér stendur þú sem Þú (eigandi) ásamt þeim sem þú hefur þegar deilt með.
- Ýttu á Bæta við manneskju.

- Skrifaðu nafn viðkomandi, til dæmis Pabbi eða Amma.
- Veldu hlutverkið Meðforeldri.
- Ýttu á Deila hlekk eða QR-kóða. Hlekkurinn er tilbúinn strax.
- Sendu hlekkinn með Deila (deilivalmynd símans), afritaðu hann með Afrita hlekk eða ýttu á Sýna QR-kóða og láttu hinn aðilann skanna kóðann með sínum eigin síma.

Viltu frekar senda tölvupóst? Skrifaðu netfangið í reitinn Netfang (valfrjálst) og ýttu á Senda boðið í tölvupósti í stað þess að búa til hlekk.
Þetta getur meðforeldri
- Fær skilaboð þegar varan er skönnuð og hringt er í það með þér þegar finnandi hringir.
- Sér kort, skönnunarsögu og skilaboð.
- Getur breytt nafni og athugasemdum og sett vöruna í bið.
- Getur kveikt og slökkt á sínum eigin tilkynningum fyrir vöruna.
- Getur aldrei greitt, deilt áfram, afhent vöruna eða fjarlægt hana úr appinu. Það getur aðeins þú sem eigandi.
Gott að vita
- Hlekkur virkar einu sinni og gildir í 14 daga. Boð í tölvupósti gildir líka í 14 daga.
- Það geta mest verið 5 manns fyrir utan þig á einni vöru.
- Listinn sýnir stöðu hvers og eins: Bíður, Með aðgang eða Útrunnið.
- Ýttu á Breyta hlutverki til að gera meðforeldri að tengilið eða öfugt. Ýttu á Fjarlægja og síðan Já, fjarlægja til að taka aðganginn til baka.
- Ef boð í tölvupósti er útrunnið getur þú ýtt á Senda aftur.
- AYA sendir aldrei SMS. Þeir sem þú deilir með fá skilaboð sem ýtitilkynningu í sínum eigin síma. Tölvupóst til vara fær aðeins þú sem eigandi.
- Þú ert alltaf eigandi. Viltu láta eignarhaldið ganga til meðforeldrisins, lestu þá Gera meðforeldri að eiganda.
Fannstu ekki svarið?
Skrifaðu okkur